- Brunavarnir Austur Húnavatnssýslu
- Norðurlandsvegur 2
- 540 Blönduós
- Sími: 452-4327
- Sendu e-mail
- Vefpóstur slökkviliðsmanna
Ráðstefna slökkviliðsstjóra 2010
Dagana 18-19. mars 2010 verður ráðstefna slökkviliðsstjóra haldin á Hótel Loftleiðum í Reykjavík.
Dagana 18-19. mars 2010 verður ráðstefna slökkviliðsstjóra haldin á Hótel Loftleiðum í Reykjavík.
Dagskrá ráðstefnunnar var unnin í samráði við Félag slökkviliðsstjóra á Íslandi. Á ráðstefnunni verður meðal annars rætt um eldvarnaeftirlit og gæðamál, Brunamálaskólann og fjarkennslu og margt annað. Einnig munu slökkviliðsstjórar mynda hópa á landsvísu til að ræða þessi málefni.
Hægt er að skoða dagskrá ráðstefnunnar hér: Skoða dagskrá ráðstefnu slökkiliðsstjóra 2010
Ráðstefnugjald er 5.000 kr. fyrir manninn og er súpa og brauð í hádeginu báða dagana innifalið í verði. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Brunamálastofnunar í síma 591 6000 eða sendið tölvupóst á tölvupóstfangið petur (hja) brunamal.is í síðasta lagi fimmtudaginn 11. mars 2010.
Gestir eiga þess kost að gista á Hótel Loftleiðum og er verð á eins manns herbergi 7.700,- kr hver nótt en tveggja manna herbergi kostar 9.500,- kr, morgunverður er ekki innifalinn í þessum verðum en hann kostar 1350 kr á mann.
Hægt er að panta herbergi í síma 444 4500
Slökkviliðsstjórar eru eindregið hvattir til að mæta á Ráðstefnu slökkviliðsstjóra 2010!
Frétt fengin af vef Brunamálastofnunar


