Ráðstefna slökkviliðsstjóra á Hótel Loftleiðum

 
Ráðstefna slökkviliðsstjóra á Hótel Loftleiðum
Í liðinni viku var ráðstefna slökkvistjóra haldin á Hótel Loftleiðum. Ráðstefna sem þessi er haldin af Brunamálastofnun ár hvert. Fulltrúi Brunavarna A-Hún sótti ráðstefnuna. Þarna er vettvangur fagaðila að koma saman og bera saman bækur sínar auk þess sem nýjungar á vegum Brunamálastofnunar eru bornar fram en þar má nefna leiðbeiningar um læknis- og heilbrigðisvottorð slökkviliðsmanna og gjaldtaka slökkviliða í eldvarnareftirliti.

Ráðstefnan hefur aldrei verið eins vel sótt og í ár en  tæplega 100 manns sóttu hana.

23. mars 2010

Til baka