Slökkviliðsstjórar eru farnir að beyta þvingunarúrræðum í mun meira mæli

 
Slökkviliðsstjórar eru í mun meira mæli farnir að beita þvingunar úrræðum til þess að brunavörnum sé sinnt og standist kröfur. Á morgun mun slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins loka Reykjavíkuflugvelli þar sem hann telur flugvallarslökkviliðið vanmannað. Ekki er svo langt síðan slökkviliðsstjórinn Slökkviliðs Akureyrar lokaði skemmtistað það í bænum vegna hindrunar við brunaútganga skemmtistaðarins.
 
 

„Stjórnsýslukæran frestar ekki réttaráhrifum og því mögulegt að flugvellinum verði lokað komi ekki til úrbóta," segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðstjóri á höfuðborgarsvæðinu, en hann hefur sent Flugstoðum bréf þar sem hann tilkynnir þeim að Reykjavíkurflugvelli verði lokað á morgun verði ekki fjölgað í liði slökkviliðsmanna á vellinum.
 
 
Nú eru þeir tveir en slökkviliðstjórinn telur að starfsmennirnir þurfi að vera fjórir.
 
Flugstoðir hafa kært málið til umhverfisráðherra sem fer með málaflokk brunavarna en að sögn Jóns Viðars þá hefur sú kæra ekki áhrif á hugsanlega lokun flugvallarins á morgun.
 
„En ég er sannfærður um að menn finni lausn á málinu áður en til þess kemur," segir Jón Viðar vongóður um framhaldið.
 
Spurður hvort lokun flugvallarins ógni öryggi svo sem sjúkraflugi af landsbyggðinni segir Jón svo ekki vera. Smærri flugvélar geti tekið á loft og lent eins og sjúkraflugvélar. Til þess þurfi eingöngu tvo slökkviliðsmenn svo úr því geti orðið.
 
Hann segir að öryggislega séð þá stafi engin hætta af lokun flugvallarins.
 
Fram kom í hádegisfréttum RÚV að forsvarsmenn Flugstoða telja Jón Viðar ekki hafa lagalegan rétt til þess að loka flugvellinum. Spurður um þetta svara Jón Viðar því að samgönguráðuneytið hafi aðra sýn á þessa stjórnvaldsákvörðun en umhverfisráðuneytið.
 
„Ég er ekki hæfur til þess að túlka lög, en ég lúti þeim," segir Jón um lagalegan ágreining ráðuneytanna.
 
Að óbreyttu verður Reykjavíkurflugvöllur lokaður á morgun.
 
 
Frétt fengin af´fréttavefnum Vísi.is
Myndir: Efri; Flugstoðir, neðri mbl.is

25. mars 2010

Til baka