Á þriðja hundrað landnámshænur drápust í eldsvoða á Tjörn

 
Á þriðja hundrað landnámshænur drápust í eldsvoða á Tjörn
Á þriðja hundrað landnámshænur og tveir kettir drápust í eldsvoða á bóndabænum Tjörn á Vatnsnesi seint í nótt. Útihúsið var tengt íbúðarhúsinu og var alelda þegar lögregla og slökkvilið kom á vettvang í nótt. Inn í útihúsinu voru um 900 egg sem voru við það að fara klekjast út að sögn varðstjóra á Blönduósi. Tilkynning um eldinn barst lögreglunni á Blönduósi rétt eftir klukkan fjögur í nótt.
 

Slökkviliðinu tókst að koma í veg fyrir að eldur læsti sig í íbúðarhúsinu sem var samtengt útihúsinu, og samanstóð af hlöðu, bílskúr og fjósi. Tjón bóndans er gríðarlegt að sögn lögreglunnar. Auk dýranna sem drápust brann mikið af tækjabúnaði inni.
 
Rannsóknadeild lögreglunnar á Akureyri lauk rannsókn á brunavettvangi um hádegið í dag. Eldsupptök liggja ekki enn fyrir að sögn lögreglunnar á Blönduósi.
 
„Mér líður bara ömurlega," sagði Júlíus Már Baldursson, þegar Vísir.is hafði samband við hann en útihúsið hans brann í nótt ásamt um 200 landnámshænum og tæplega þúsund eggjum sem áttu að klekjast út eftir þrjá daga.
 
Júlíus býr á Tjörn í Vatnsnesi en hann var stærsti landnámshænuræktandi á Íslandi. Hann vann við það að bjarga stofninum úr útrýmingarhættu. Stofninn hans var orðinn 32 ára gamall þegar hann brann. Ekkert er eftir nema tíu hanar.
 
„Þetta er menningararfur eins og íslenski hesturinn og sauðkindin eða geitin," sagði Júlíus Már sem er enn þá að jafna sig eftir eldsvoðann í nótt. Hann segir tjónið gífurlegt, það hlaupi á milljónum, fyrir utan tilfinningalega tjónið sem hann varð fyrir. Júlíus horfir á eftir vinnu sinni til þriggja áratuga. Slíkt er aldrei auðvelt.
 
Alls eru um 2-3 þúsund landnámshænur til á Íslandi því er dauði dýranna í nótt mikil blóðtaka fyrir stofninn. Júlíus Már gefst þó ekki upp, hann segir fjölmarga hafa haft samband við sig í morgun og boðið sér hænur til þess að rækta.
 
„Ég held ótrauður áfram, ég þarf bara fyrst að komast yfir þetta áfall," segir Júlíus en næst þarf hann að koma á rafmagni heima hjá sér auk þess sem til stendur að hreinsa upp brakið eftir nóttina.
 
Heimild: Visir.is
Mynd: Brunavarnir Austur-Húnavatnssýslu
 

30. mars 2010

Til baka