Bílslys við Blönduós

 
Jeppi og fólksbifreið rákust saman á þjóðveginum rétt fyrir ofan Blönduós með þeim afleiðingum að tvennt hlaut meiriháttar meiðsl og fernt minniháttar.

Að sögn lögreglunnar á Blönduósi var tilkynnt um slysið um klukkan hálf fimm. Tildrög þess eru þau að ökumaður jeppans missti stjórn á bifreið sinni í hálku við Breiðavað með þeim afleiðingum að jeppinn lenti á fólksbifreið sem kom úr gagnstæðri átt.
 
Fernt var um borð í jeppanum, en tvennt í fólksbílnum og hlutu þau sem í fólksbílnum voru meiriháttar meiðsl en fólkið í jeppanum slasaðist minniháttar. Fólkið var flutt á heilbrigðisstofnanir annars vegar á Sauðárkróki og hins vegar Blönduósi, en ekki er útséð með það að senda þurfi einhverja á Landspítalann í Reykjavík til frekari aðhlynningar.
 
Fólksbifreiðin er gjörónýt og jeppinn mikið skemmdur.
 
Frétt fengin af www.mbl.is
 

06. apríl 2010

Til baka