Vel heppnuð æfing - Heit reykköfun

 
Vel heppnuð æfing - Heit reykköfun
Í gærkvöldi hélt slökkvilið Brunavarna A-Hún. reglubundna slökkviliðsæfingu. Á æfinguna var tekinn fyrir búnaður í sjúkrabílnum sem slökkviliðsmenn gætu þurft að nota til aðstoðar við sjúkraflutningamenn auk þess sem farið var í reykköfun og slökkvistarf.

Æfingin hófst með yfirferð Einar Óla, umsjónarmanns yfir sjúkrabílunum HSB, á notkun á bakbretti og sjúkrakörfu. Í umferðarslysum eru slökkviliðsmenn að jafnaði til aðstoðar við að koma slösuðum úr bílflaki og í sjúkrabíl og því áríðandi að menn þekki vel til verka. Menn voru mjög áhugasamir og ljóst á fljótlega þarf að hafa aðra æfingu sem þessa.
 
Síðar á æfingunni var farið uppí Drekagil þar sem kveikt var upp í yfirtendrunargámnum. Þar fóru með í heita reykköfun og fylgdust með hvernig þróun elds er í lokuðu rými og hvað stutt getur verið frá því að ástand sé viðráðanlegt og yfir í að verða óviðráðanlegt.
 
Í lok æfingarinnar var svo farið yfir notkun á slökkvistarfi með froðu
 
Æfingin gekk framúrskarandi vel og stóðu slökkviliðsmenn sig með prýði á öllum sviðum.
 
Á meðfylgjandi slóð má sjá myndir af æfingunni

21. apríl 2010

Til baka