- Brunavarnir Austur Húnavatnssýslu
- Norðurlandsvegur 2
- 540 Blönduós
- Sími: 452-4327
- Sendu e-mail
- Vefpóstur slökkviliðsmanna
Vorverkin hafin
Nú er sumarið brostið á með líka þessum brakandi þurrki hérna á Blönduósi. Formlega í dag hófust sumarverkin þegar yfirmaður tæknideildar Blönduósbæjar hafði samband við slökkviliðið og óskaði eftir því að vegurinn uppá Klauf yrði rykbundinn.
Farið var í verkið og vegurinn bleyttur og með því komið í veg fyrir að ryk og drulla myndu dreyfast yfir bæinn.


