- Brunavarnir Austur Húnavatnssýslu
- Norðurlandsvegur 2
- 540 Blönduós
- Sími: 452-4327
- Sendu e-mail
- Vefpóstur slökkviliðsmanna
Vel heppnuð slönguæfing í gær - Áttan stóð sig vel
Slökkvilið Brunavarna A-Hún. hélt mánaðarlega æfingu í gær. Tekin voru fyrir grunatriði í slökkvistarfi, s.s. slökkvistarf utanhúss, slöngulögn og vatnsöflun. farið var yfir reykköfunarbúnað með nýjum mönnum. Einnig var farið að bænum Sauðanes þar sem vatnstaka var æfð, annarsvegar með Bedford-dælunni sem er aftan á Man og hinsvegar lausu dælunni sem slökkviliðið er með í láni frá Slökkviliði Akuryerar.Ástæða þess að lausa dælan er hér á Blönduósi er vegna þess að dælan sem er aftan á einum slökkviliðsbílnum gaf sig fyrir skömmu og á meðan varahlutir berast til landsins hljóp Slökkvilið Akureyrar að sjálfsögðu undir og útveguðu búnað á meðan. Um er að ræða 1400 l., loftkælda VW dælu á kerru. Þrátt fyrir að vera kominn vel á aldur stóð hún sig vel og ljóst að það er hugsað vel um hana í Eyjafirðinum.
Myndir af æfingunni má sjá með því að smella hér


