Tilkynnt um eld í togara

 
Björgunarsveitir og skip við Húnaflóa voru sett  í viðbragðsstöðu eftir hádegið eftir að tilkynnt var um eld í togara, sem staddur er á flóanum. Skömmu síðar bárust þær fréttir, að aðstoðin hefðu verið afturkölluð og viðbúnaðarástandinu aflétt.

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni barst neyðarkall frá skipinu vegna elds um borð en um 20 mínútum síðar hafði skipstjórinn samband á ný og sagði að ekki væri lengur þörf á aðstoð.

Slökkvilið Skagastrandar var einnig boðað út. Slökkviliðsstjóri Brunavarna A-Hún hafði fregnir af útkallinu og hafi samband við slökkviliðsstjórann á Skagaströnd og bauð fram aðstoð sem hann þáði strax. Ákveðið var að senda af stað fjóra menn með lausa dælu og reykköfunarbúnað. Að auki var mannskaður kallaður í hús til að vera til taks.

Eins og áður greinir var útkallið afturkallað skömmu síðar.

14. maí 2010

Til baka