- Brunavarnir Austur Húnavatnssýslu
- Norðurlandsvegur 2
- 540 Blönduós
- Sími: 452-4327
- Sendu e-mail
- Vefpóstur slökkviliðsmanna
Áskorun á meistaraflokk Hvatar
Á undanförnum vikum og mánuðum hefur slökkvilið Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu farið í mikla liðsuppbyggingu. Þar skiptir miklu máli á liðsheildin sé sterk og að menn vinni saman í ábyrgðarmiklu og krefjandi starfi. Uppbyggingin hefur gengið framúrskarandi vel og eru Brunavarnir Austur-Húnavatnssýslu, án efa, með eitt sterkasta hlutastarfandi slökkviliðs landsins.Liðsmenn slökkviliðsins koma úr öllum greinum atvinnulífsins. Hluti liðsins hefur lokið námi slökkvilismanna og stjórnendur og millistjórnendur viðbótarnámi. Brunavarnir Austur-Húnavatnssýslu er eina hlutastarfandi slökkvilið landsins sem hefur slökkviliðsmenn á föstum vökum utan dagvinnu tíma og um helgar. Metnaður og kraftur slökkviliðsins hefur undanfarið verið að skila sér með mjög góðum æfingum og skipulagningu.
Til að sýna íbúum og öðrum hversu öflugt slökkviliðið er, skorar slökkvilið á meistaradeild Hvatar í fótbolta. Við hvetjum þjálfara Knattspyrnufélagsins Hvatar til að hafa samband við slökkviliðsstjóra. Keppnisdagur og -tími mun verða auglýstur síðar.


