- Brunavarnir Austur Húnavatnssýslu
- Norðurlandsvegur 2
- 540 Blönduós
- Sími: 452-4327
- Sendu e-mail
- Vefpóstur slökkviliðsmanna
Eiturefnaæfing á Blönduósi
Slökkvilið Brunavarna A-Hún hélt eiturefnaæfingu í gærkvöldi. Æfingin var yfirgripsmikil og var björgunarsveitinni Blöndu boðið að vera með. Æfingin var sett upp með að mikill ammoníaksleki kæmi frá sölufélagi SAH á Blönduósi. Þar átti kútur utan við húsið að hafa rifnað. Allt tiltækt slökkvilið var kallað á staðinn. Settar voru upp jaðar lokanir, ytri lokanir og innri lokanir ásamt sturtu og slöngum. Björgunarsveitarmenn gengu í hús og tilkynntu um hættuástand eins og um rýmingu væri að ræða.
Slökkviliðsmenn unnu svo við að koma í veg fyrir lekann með þeim búnaði sem hægt var. Æfingin var sett upp eins raunverulega og hægt var. Reykur var látinn flæða um ammoníaktankinn til að gera lekann raunverulegri. Settar voru upp lokanir með bílum og lokunarborðum og bílar viðbragðsaðila stóðu á bláum ljósum. Æfingin vakti mikla athygli í bænum.
Myndir af æfingunni er hægt að sjá hér


