- Brunavarnir Austur Húnavatnssýslu
- Norðurlandsvegur 2
- 540 Blönduós
- Sími: 452-4327
- Sendu e-mail
- Vefpóstur slökkviliðsmanna
Námskeið í brunavörnum
Með skömmu millibili hafa slökkviliðsstjórar Brunavarna A-Hún haldið tvö námskeið fyrir fyrirtæki í brunavörnum og í meðhöndlun slökkvitækja. Fyrirtækin eru Landsvirkjun og N1.
Landsvikrjun óskaði eftir námskeiði fyrir sumarstarfsmenn sína sem staðsettir eru í Blönduvirkjun. Þar var farið yfir brunavarnir með glæsusýningu og að því loknu var æfð rýming úr svefnaðstöðu starfsmanna, en hún er á þriðju hæð þjónustubyggingarinnar við Blönduvirkjun. Allir starfsmennirnir þurftu að fara niður neyðarstigan ofan af þriðju hæð. Með þessu fengu þau betri tilfinningu hvernig það væri að taka á við ákveðnar aðstæður ef upp kæmi neyðartilfelli.
Að því loknu var kveiktur eldur í olíupotti og fengur starfsmenn að spreyta sig á mismundandi gerðum af slökkviefni. Slökkviefnin voru þurrduft, kolsýra og léttvatn. Þá fengu þau þjálfun í notkun á eldteppi.
Svipaða sögu er að segja af námskeiði sem haldið var fyrir starfsfólk N1 á Blönduósi og Skagafirði.
Slökkviliðstjóri hvetur fyrirtæki til að hafa samband við slökkviliðið ef þau hafa áhuga á slíku námskeiði fyrir sitt starfsfólk.
Myndirnar eru frá námskeiðinu upp við Blönduvirkjun





