Sumargaman á slökkvistöðinni

 
Sumargaman á slökkvistöðinni
Krakkar sem eru á sumargaman-námskeiði á vegum Blönduósbæjar heimsóttu slökkvistöðina í dag. Slökkviliðsstjóri sýndi þeim þau tæki og tól sem slökkviliðið hefur til umráða og útskýrði hlutverk slökkviliðsins. Þá var útskýrt fyrir börnunum hvernig þau eigi að bera sig að ef þau þurfi að hringja í 1-1-2.

Börnin voru öll mjög meðvituð um hversu hættulegur eldurinn og reykurinn getur verið og voru öll sammála um það mætti alls ekki leika sér með eld.
 
Eftir að hafa rætt saman nokkra stund fengu þau að sjá hópstjórnana sína slökkva eld með handslökkvitækjum auk þess sem þau sjálf fengu að sprauta úr brunaslöngu. Að sjálfsögðu eins og góðum slökkviliðsbarni sæmir voru þau með slökkviliðshjálm á höfðinu.
 
 
Fleiri myndir má sjá með því að smella hér
 
 

22. júní 2010

Til baka