Eldur í bíl við Kleifarhorn

 
Eldur í bíl við Kleifarhorn
Slökkvilið Brunavarna A-Hún. var kallað út laust fyrir klukkan 1 í nótt eftir að tilkynnt hafði verið til Neyðarlínunnar um eld í bifreið í malarnámunum við Kleifarhorn. Um gamlan bíl var að ræða og var hann brunninn til grunna þegar slökkviliðið kom á vettvang.

Slökkviliðsmenn slökktu eldinn í bílflakinu sem að öllum líkindum hafði verið skilið eftir.

05. júlí 2010

Til baka