- Brunavarnir Austur Húnavatnssýslu
- Norðurlandsvegur 2
- 540 Blönduós
- Sími: 452-4327
- Sendu e-mail
- Vefpóstur slökkviliðsmanna
Hús brennt í æfingarskyni við Svínavatn
Slökkvilið Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu hélt stóra æfingu í dag. Ábúendur gáfu slökkviliðinu forláta sumarbústað til að brenna í æfingarskyni.
Hópur slökkviliðsmanna hélt svo upp að Svínavatni í dag þar sem bústaðurinn stóð. Kveikt var upp í herbergi í húsinu og reynt að líkja eftir eins og ef um jólatrésbruna væri að ræða inni í íbúðarhúsi. Reykkafarar voru svo sendir inn þar sem þeir gátu fylgst með þróun elds og hvernig yfirtendrun á sér stað.
Þegar menn hefðu náð því út úr æfingunni sem ætlast var til var húsið svo látið brenna til grunna. Það má sannarlega segja að það er ekki oft sem slökkvilismenn bíða og horfa á hús brenna til grunna. Æfingin gekk mjög vel.
Hér má sjá myndir af æfingunni


