Beittu klippum til að ná ökumanni út

 
Slökkvilið Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu ásamt sjúkraliði, var kallað út laust eftir klukkan þrjú í dag eftir að bifreið fór útaf Þjóvegi 1 í Langadal í dag. Beita þurfti klippum til þess að ná ökumanni bifreiðarinnar út úr bílflakinu sem talið er að hafi farið 2-3 veltur. Tveir voru í bílnum. Voru þeir báðir fluttir á Heilbrigðisstofnunina á Blönduósi til frekari skoðunar.

20. júlí 2010

Til baka