- Brunavarnir Austur Húnavatnssýslu
- Norðurlandsvegur 2
- 540 Blönduós
- Sími: 452-4327
- Sendu e-mail
- Vefpóstur slökkviliðsmanna
Fundurinn bakslag - styttist í allsherjar verkfall atvinnumanna
Ekki náðist árangur á kjarafundi Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) og launanefndar sveitarfélaganna í gær.
Valdimar Leó Friðriksson, framkvæmdastjóri LSS, segir málið nú liggja allt hjá launanefndinni og fundurinn í gær hafi verið bakslag í kjaradeiluna.
Finnur Hilmarsson, varaformaður LSS, segir öryggismál á menningarnótt nú vera í uppnámi sökum yfirvinnubannsins sem er í gildi.
„Bráðaþjónustunni verður einungis sinnt úr Skógarhlíðinni. Og það er með tilliti til seinkana," segir Finnur.
Heimild: www.visir.is


