BAH aðstoðar við viðgerð á Skrapatungurétt

 
Tankbifreið Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu var notuð til viðgerðar á Skrapatungurétt í vikunni sem leið. Ástæðan er sú að starfsmenn Stíganda sem annast viðgerðirnar þurftu að háþrýstiþvo réttina áður en steypuskemmdir eru lagaðar. Þar sem torsótt var að fá vatn var brugðið á það ráð að leita til slökkviliðsins.

Fréttamiðillinn Húnahornið fjallaði um viðgerðina í stuttri frétt í vikunni og þar sagði:
 
"Fréttaritaði hafði frétt af því að viðgerð stæði yfir á Skrapatungurétt en hann hitti Jóhann slökkviliðsstjóra í gær er hann kom heim frá því verki. Unnið er við steypuskemmdir en einnig er verið að háþrýstiþvo réttina og er slökkviliðsbifreið Brunavarna A-Hún. m.a. notuð við það."
 
Myndina tók Auðun Sigurðsson/Húnahornið
 
 

20. ágúst 2010

Til baka