- Brunavarnir Austur Húnavatnssýslu
- Norðurlandsvegur 2
- 540 Blönduós
- Sími: 452-4327
- Sendu e-mail
- Vefpóstur slökkviliðsmanna
Slökkviliðsstjóri BAH í heimsókn hjá Slökkviliði Vestmannaeyja
Nýverið fór slökkviliðstjóri í heimsókn til Slökkviliðs Vestmannaeyja og tók þátt í æfingu slökkviliðsins þar. Farið var á Skansinn þar sem farið var yfir dælubúnað og slökkvimátt liðsins. Æfingin gekk vel í alla staði og var fróðlegt og forvitnilegt að sjá tækjabúnað, aðbúnað og verklagsþætti liðsins.
Heimsóknir sem þessar eru mjög áhugaverðar þar sem slökkviliðsstjórar geta kynnt sér starfsemi annarra liða og gæti það samræmt enn frekar starfsemi hlutastarfandi slökkviliða. Einnig stykir það tengsl liða á hinum ýmsu sviðum.
Slökkvilið Vestmannaeyja hefur yfir að ráða þremur 3 dælubílum, einum tankbíl og einum mannskapsbíl. Auð auki hafa þeir eina slökkvibifreið á flugvellinum. Í liðinu eru 29 hlutastarfandi slökkviliðsmenn. Haldnar eru æfingar hjá liðinu hvern laugardag.
Hér má sjá heimasíðu Slökkviliðs Vestmannaeyja

Hér má sjá myndir frá heimsókninni


