Heimsókn frá Brunamálastofnun

 
Heimsókn frá Brunamálastofnun
Í dag og í gær var Pétur Valdimarsson, starfsmaður Brunamálastofnunar, á starfssvæði BAH. Fór hann með slökkviliðsstjóra í fyrirtæki á Blönduósi þar sem eldvarnir voru teknar út. Eftirlitið gekk vel og ljóst að fyrirtækin í bænum reyna eftir fremsta megni að hafa eldvarnir sínar í lagi.

Pétur fylgdist einnig með æfingu slökkviliðsins í gær og hvernig slökkviliðsmenn og stjórnendur unnu saman.

08. september 2010

Til baka