- Brunavarnir Austur Húnavatnssýslu
- Norðurlandsvegur 2
- 540 Blönduós
- Sími: 452-4327
- Sendu e-mail
- Vefpóstur slökkviliðsmanna
Klippuæfing í gær
Slökkviliðið var með mánaðarlega æfingu í gærkvöldi. Tekið var fyrir klippuvinna og umgengni við sjúkrabílana. Hópnum var skipt í tvenn þannig að æfingin varð markvissari fyrir vikið.
Klipptir voru tveir bílar og var farið vel yfir hvaða tækni og aðferðir er gott að nota þegar unnið er við þessa vinnu. Einar Óli fór svo með mönnum yfir notkun á sjúkrabúnaði sjúkrabílanum en oftar en ekki þurfa slökkviliðsmenn að aðstoða þá við vinnu á vettvangi og því nauðsynlegt að þeir hafi þekkingu og kunnáttu á búnaði sjúkrabílanna


