Göngum til góðs - 2. október 2010

 
Landssöfnun Rauða krossins, Göngum til góðs, fer fram laugardaginn 2. október.
 
 
Þá verður þörf fyrir 3000 sjálfboðaliða og eru því allir sem vettlingi geta valdið hvattir til þátttöku.

Söfnunarfénu verður varið til verkefna Rauða kross Íslands í Afríku. Sérstaklega er um barna- og ungmennaverkefni í Malaví og Síerra Leóne að ræða. Í Malaví, þar sem verkefnin fara æ vaxandi, aðstoðar Rauði krossinn börn sem eiga um sárt að binda vegna alnæmis og í Síerra Leóne er unnið að stuðningi við stríðshrjáð börn og barnahermenn
 
Féð gerir okkur meðal annars kleift að:
 
- gefa munaðarlausum börnum eina heita máltíð á dag í athvörfum, þar sem þau geta líka leikið sér og fengið uppbyggjandi fræðslu.
- aðstoða sjálfshjálparhópa alnæmissmitaðra við að koma sér upp matjurtargörðum, sem eflir heilsu og lengir líf þeirra.
- kenna 150 stríðshrjáðum ungmennum á ári lestur, skrift og ýmsar iðngreinar til að gefa þeim tækifæri í lífinu sem þau hefðu annars ekki.
 

22. september 2010

Til baka