Sundlaugaræfing með Brunavörnum V-Hún.

 
Sundlaugaræfing með Brunavörnum V-Hún.
Á dögunum sótti slökkviliðsstjóri BAH æfingu með Brunavörnum V-Hún. og kynnti fyrir þeim notkun á sundlaug (safnþró) samhliða notkun á vatnsflutningabíl. Slökkviliðsstjóri fór með sundlaugina sem BAH hefur til afnota og var hún notuð við æfinguna.

Eins og áður hefur komið fram er þessi búnaður nauðsynlegur í liðum sem þessum þar sem torvelt getur verið að nálgast vatn og sannaðist það á æfingunni sem haldin var við skólann á Laugarbakka en langt er í vatn, bæði brunahana og ánna sem þó er skammt undan.
 
Æfingin gekk vel og má sjá myndir af henni hér.

23. september 2010

Til baka