Mildi að ekki fór verr

 
Eldur kom upp í húsi við Garðaveg á Hvammstanga í dag. Húsið var mannlaust þegar eldurinn kviknaði og að sögn slökkviliðsins á Blönduósi, sem kom á staðinn ásamt slökkviliðinu á Hvammstanga, urðu miklar skemmdir.
 
 
 

Jóhann K. Jóhannsson, slökkviliðsstjóri á Blönduósi, sagði við mbl.is, að mikill eldur og hiti hefðu verið inni í húsinu þegar að var komið. Slökkvistarf var nokkuð erfitt en langan tíma tók að slökkva í glæðum.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Ekki er vitað um eldsupptök en lögreglan á Blönduósi rannsakar málið.
 
Fréttir af málinu má lesa hér, hér og hér 
 
Heimild: www.mbl.is
 

25. september 2010

Til baka