Starfsmenn Arion banka á Blönduósi slökktu elda

 
Starfsmenn Arion banka á Blönduósi slökktu elda
Á dögunum hélt slökkviliðsstjóri fræðsludag varðandi eldvarnir með starfsmönnum Arion banka á Blönduósi. Farið var yfir eldvarnir á vinnustöðum og eldvarnir á heimilum.

Starfsmenn bankans fengu í fræðslunni að takast á við að fara niður brunastigann ef rýma þyrfti vinnustaðinn auk þess sem starfsmenn bankans fengu þjálfun í að nota hanslökkvitæki.
 
Slökkviliðsstjóri hvetur starfsmenn og eigendur fyrirtækja til að kynna sér frekar eldvarnaforvarnir á sínum vinnustað og hægt er að hafa samband við slökkviliðið ef áhugi er fyrir að fá fræðslu á vinnustaðinn.

05. október 2010

Til baka