- Brunavarnir Austur Húnavatnssýslu
- Norðurlandsvegur 2
- 540 Blönduós
- Sími: 452-4327
- Sendu e-mail
- Vefpóstur slökkviliðsmanna
Bæjarstjórinn í reykköfun
Arnar Þ. Sævarsson, bæjarstjóri á Blönduósi tók þátt í æfingu með slökkviliði Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu í gær. Bæjarstjórinn var að kynna sér stöf slökkviliðsins og á æfingunni setti slökkviliðsstjóri hann í hlutverk slökkviliðsmanns.
Á æfingunni var farið í heita reykköfun í yfirtendrunargámnum sem slökkviliðið hefur til umráða í Draugagili. Nánast allir slökkviliðsmenn liðsins fóru í gáminn og fylgdust með hvernig þróun innanhúsbruna á sér stað allt frá því að eldur kviknar og þar til yfirtendrun á sér stað.
Farið var vel yfir alla öryggisþætti reykkafara og hvað þeir þurfa að varast áður en farið er í reykköfun. Farið var yfir búnað og notkun hans og heðhödlun.
Myndir af æfingunni má sá hér


