Bifreið brann eftir veltu

 
Lögreglan á Blönduósi fékk tilkynningu um út af akstur rétt vestan við Blönduós, á þjóðveginum við hliðina á flugvellinum. Í tilkynningunni sagði að enginn hefði slasast. Þegar lögreglan var á leið á staðinn kemur önnur tilkynning um að kviknað sé í bílnum. Þá var slökkvilið ræst út.

Bíllinn valt hálfa veltu en talið er að hann hafi verið rétt undir hámarkshraða, sem er 90 kílómetrar á klukkustund á þessum slóðum. Mikil hálka er á svæðinu en það snjóaði seinni partinn í dag á svæðinu. Bíllinn brann og er nær óþekkjanlegur, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Hann er þó af gerðinni Subaru Forester, sem er fjórhjóladrifinn smájeppi. Ekkert var að dekkjunum á bílnum sem eru splunkuný nagladekk.

Stúlkurnar þrjár voru fluttar til aðhlynningar á sjúkrahús en eru ekki alvarlega slasaðar. Lögreglan á Blönduósi biðlar til ökumanna sem eiga leið á þjóðveginum að fara varlega. Mikil hálka er víðast hvar um landið.
 
Heimild: www.visir.is
 

25. október 2010

Til baka