Brunavarnir á leikskólum á starfsvæði BAH í reglubundnu eftirliti í vetur

 
Slökkviliðsstjóri heimsótti leikskólann á Blönduósi og á Húnavöllum í síðustu viku og hóf þar með samstarf milli Brunavarna A-Hún og leikskólanna um að efla forvarnir í leikskólum landsins. Um er að ræða samstarfsverkefni slökkviliðanna og leikskólanna þar sem slökkviálfarnir Logi og Glóð leika aðalhlutverkið.

Í framhaldinu mun slökkviliðsstjóri svo heimsækja leikskólana einu sinni í mánuði í vetur og fræða börnin.
 
Verkefnið er sótt til EBÍ (E. Brunabótafélag Íslands). Leikskólabörnin og fjölskyldur þeirra fá fræðslu um eldvarnir heimilanna og leikskólarnir ábyrgjast að eldvarnir á leikskólanum séu í lagi. EBÍ hefur fjármagnað gerð vandaðs fræðsluefnis í þessu skyni fyrir öll slökkvilið á landsbyggðinni frá haustinu 2007.
 
EBÍ hefur gefið út fræðslubæklinga um eldvarnir heimilanna á ýmsum tungumálum, sem sérstaklega eru ætlaðir innflytjendum. Árið 2009 gaf félagið út bækling um eldvarnir heimilisins í stóru upplagi og nutu slökkvilið um allt land góðs af. Dæmi voru um að slökkvilið dreifðu bæklingnum inn á hvert heimili á sínu starfssvæði.
 

28. október 2010

Til baka