Æfing í Blönduvirkjun

 
Slökkviliðsmenn Brunavarna A-Hún héldu æfingu á dögunum í Blönduvirkjun ásamt starfsmönnum Blönduvirkjunar. Farið var í gegnum virkjunina og hún skoðuð auk þess sem með æfðu reykköfun í aðkomugöngunum.

Mikilvægt er fyrir slökkviliðsmenn að fara í vettvangsheimsóknir sem þessar til að kynna sér aðstæður í stórum og miklum mannvirkjum svo þeir geti betur áttað sig á aðstæðu ef vá ber að höndum. Æfingin gekk vel.

11. nóvember 2010

Til baka