- Brunavarnir Austur Húnavatnssýslu
- Norðurlandsvegur 2
- 540 Blönduós
- Sími: 452-4327
- Sendu e-mail
- Vefpóstur slökkviliðsmanna
Mildi að ekki hafi farið verr á Norðurlandsvegi
Mildi þykir að ekki hafi farið verr í umferðarslysi á Norðurlandsvegi fyrr í kvöld. Lögreglan hefur lokið störfum á Norðurlandsvegi í Víðidal þar sem alvarlegt bílslys varð rétt fyrir kl. 19 í kvöld. Tveir slösuðust og var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til að flytja þá á slysadeild í Reykjavík. Þyrlan lenti í Fossvogi kl. 21. Búið er að opna veginn aftur fyrir umferð.Vegurinn var lokaður í báðar áttir á meðan lögregla og sjúkralið athöfnuðu sig á vettvangi.
Skv. upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi er fljúgandi hálka á veginum. Hiti sé um frostmark og þá hafi verið rigningarúði á slysstað og menn hafi því átt erfitt með að sjá hálkuna.
Varðandi tildrög slyssins segir lögreglan að ökumaður jeppabifreiðar hafi reynt að nauðhemla þegar hann hafi séð að bifreið, sem var á undan jeppanum, hægði skyndilega á sér. Ökumaður jeppans missti stjórn á bifreiðinni þegar hann reyndi að forðast árekstur. Jeppinn hafnaði utan vegar þar sem hann rakst á aðra bifreið, sem verið var að reyna að draga upp á veginn. Að sögn lögreglu var það vegna þeirrar bifreiðar sem fremri bíllinn hemlaði.

Maður sem stóð fyrir aftan bifreiðina sem verið var að draga fékk hana á sig og slasaðist.
Jeppinn kastaðist hins vegar áfram og í áttina að hóp fólks. Ung stúlka sem var í hópnum féll við þegar hún reyndi að komast undan og hafnaði jeppinn ofan á henni. Var hún föst undir bílnum þegar lögreglu og sjúkralið bar að garði.
Ekki liggur fyrir hversu alvarleg meiðsl þau hlutu, en þau voru bæði með meðvitund og stöðug að sögn lögreglu.
Frétt fengin af mbl.is


