- Brunavarnir Austur Húnavatnssýslu
- Norðurlandsvegur 2
- 540 Blönduós
- Sími: 452-4327
- Sendu e-mail
- Vefpóstur slökkviliðsmanna
Eldvarnarátak Brunavarna A-Húnavatnssýslu
Dagana 6-10. desember 2010 verða Brunavarnir Austur-Húnavatnssýslu (BAH) með sérstakt eldvarnvarnarátak. Í tilefni þess hvetja slökkviliðsmenn BAH alla íbúa um að huga að eldvörnum í híbýlum sínum sínum.
Gott er að skipta um rafhlöður í reykskynjurum að minnstakosti einu sinni á ári og nota það tækifæri til þess að prófa þá. Það er ekki nóg að vera með einn reykskynjara í íbúð. Raftækjum á heimili hefur fjölgað svo um munar og allt skapar það eldhættu.
Þá er einnig gott að athuga með slökkvitæki og eldvarnarteppi á heimilinu. Gott er að taka slökkvitækið upp og lesa leiðbeiningar um notkun þess. Einnig er gott að snúa því á hvolf og ganga svo frá því á sinn stað. Rétt staðsetning slökkvitækis er í flóttleið íbúðar. Einnig er gott að athuga hvort loftþrýstingur sé á tækinu.
Ef eldvarnarteppi er á heimilinu er gott að lesa leiðbeiningar um notkun þess.
Slökkviliðsmenn BAH munu í vikunni og þeirri næstu ganga á heimili innan Blönduós og minna íbúa á að tryggja eldvarnir heimilisins. Með í farteskinu verða auka reykskynjarar, batterí, eldvarnarteppi og slökkvitæki. Íbúar í dreifbýli fá heimsókn slökkviliðsstjóra í tengslum við eldvarnareftirlit BAH á næstu misserum.
Öllum er velkomið að hafa samband í síma 860-0092 til að fá frekari upplýsingar. Ef það vantar búnað til að tryggja betur eldvarnir heimilisins má hafa samband við slökkviliðið til ráðgjafar.