Harður árekstur við Galtarnes

 
Árekstur tveggja bíla varð skammt norðan við Víðihlíð í Húnaþingi seint í gærkvöldi. Þrír voru í bílunum og tveir þeirra voru fluttir slasaðir á sjúkrahús, annar til Blönduóss og hinn til Reykjavíkur. Ekki er vitað nánar um tildrög slyssins eða líðan hinna slösuðu. Þó var ekki um lífshættulega áverka að ræða.

Tilkynnt var um áreksturinn kl. 22.40 og fóru lögregla og sjúkralið frá Blönduósi og Hvammstanga á vettvang, við bæinn Galtarnes norðan Víðihlíðar í V-Húnavatnssýslu.
 
Slökkvilið Blönduós aðstoðaði sjúkraflutningamenn á staðnum og tryggði öryggi á vettvangi með því að aftengja rafgeyma bifreiðanna sem voru illa farnar eftir áreksturinn.
 
Heimild: huni.is

09. desember 2010

Til baka