- Brunavarnir Austur Húnavatnssýslu
- Norðurlandsvegur 2
- 540 Blönduós
- Sími: 452-4327
- Sendu e-mail
- Vefpóstur slökkviliðsmanna
Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri minnir á brunavarnir
Eldsvoðar undanfarinna daga minna okkur á það mikla tjón og þær hörmungar sem eldur getur valdið og vekja okkur til umhugsunar um eldvarnir og meðferð elds.Nú er genginn í garð sá tími ársins sem vekur hvað mesta gleði í hjörtum flestra, tími ljóss og friðar og fjölskyldunnar. Þetta er einnig sá tími ársins sem einna mikilvægast er að huga að eldvörnum heimila og gæta þess að fara varlega með eld. Jólaljósin eru falleg, þau lýsa upp skammdegið og við viljum geta notið þeirra, en ónægar eldvarnir, lélegur frágangur rafljósa og ógætileg umgengni við opinn eld geta breytt hátíðleika jólanna á svipstundu í harmleik.
Þó vissulega sé rétt að slysin geri oft ekki boð á undan sér, geta eldvarnir skilað miklu og dregið verulega úr hættu á tjóni á lífi, heilsu og eignum fólks. Nýlegt dæmi frá Hofsósi sannar það, en nú um helgina náði maður að forða sér með naumindum út úr húsi sínu, sem brann til grunna. Reykskynjari vakti hann og hefði ekki verið spurt að leikslokum ef skynjarans hefði ekki notið við. Reykskynjarar hafa margsannað gildi sitt og bjargað ótal mannslífum. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur farið í nokkur útköll nú á aðventunni þar sem reykskynjarar gerðu fólki viðvart um eld. Reykskynjarar, handslökkvitæki og eldvarnarteppi er oft kölluð hin heilaga þrenning heimilisins og þurfa að vera til staðar á hverju heimili. Á heimasíðum slökkviliðsins og Brunamálastofnunar er að finna greinargóðar upplýsingar um eldvarnir, s.s. um meðferð kertaskreytinga, val á slökkvitækjum og reykskynjara og staðsetningar þeirra, auk þess sem Eldvarnabandalagið, samstarfsvettvangur um eldvarnir heimilanna, hefur gefið út ítarlegt fræðsluefni fyrir heimili.
Eldsvoðar eru tíðir í desember og alla jafna mikið annríki hjá slökkviliðum landsins. Báru fréttir síðastliðinnar helgar þess merki, þó ekki hafi allt mátt rekja til aðventunnar. Stórbruni kom m.a. upp í álverinu á Reyðarfirði á laugardaginn eftir sprengingu og tókst slökkviliðsmönnum að ráða niðurlögum eldsins á nokkrum tímum og koma í veg fyrir að eldurinn bærist í 200 þúsund lítra af olíu og valda þannig enn meira tjóni.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins verður í viðbragðsstöðu um hátíðarnar sem og endranær. Það er von mín að starfsmenn slökkviliðsins eigi róleg jól og að þau verði íbúum höfuðborgarsvæðisins farsæl.


