Alvarlegt slys í Langadal þegar tveir vöruflutningabílar lentu saman

 
Slysið í Langadal átti sér stað með þeim hætti að flutningabíll fékk tengivagn á sig.  Ökumaður bílsins var fluttur slasaður með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur.

Slysið átti sér stað í brekku vestan við Bólstaðahlíðarbrekku. Tveir stórir flutningabílar voru að mætast á vegnum og lenti tengivagn bílsins sem var á norðurleið framan á flutningabílnum sem var á suðurleið.  Ekki er full ljóst hvers vegna þetta gerðist, en annað hvort hefur tengivagninn losnað aftan úr bílnum eða að hinn bíllinn lenti á tengivagninum. Rannsókn á slysinu er ekki lokið.
 
Á tengivagninum voru steypurör og dreifðust þau um veginn á 300-400 metra kafla.
Þar sem slysið átti sér stað er víravegrið og lenti flutningabíll á því. Að sögn sjónarvotta slitnaði annar vírinn, en hinn vírinn kom í veg fyrir að bíllinn færi út af veginum.
 
Slysið átti sér stað laust eftir kl. 19. Í tilkynningu frá lögreglu segir að vegurinn verði lokaður í nokkra klukkutíma meðan verið er að hreinsa veginn. Umferð hefur verið beint um Þverárfjallsveg.
Ökumaðurinn sem slasaðist var fluttur með sjúkrabíl til Blönduóss. Þar tók þyrla Landhelgisgæslunnar við honum og flutti hann á Landspítalann.
 
Heimild: www.mbl.is

28. desember 2010

Til baka