Liðsmenn BAH harma fréttaflutning af slysinu í Langadal

 
Slökkviliðsstjórar og slökkviliðsmenn Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu harma mjög fréttaflutning sumra fjölmiðla af umferðarslysi sem varð í Langadal að kvöldi 27. desember s.l. og taka undir opið bréf sem stjórnendur Eimskips sendu frá sér í gær.

Vilja liðsmenn slökkviliðsins brýna fyrir fjölmiðlum að yfirfara siðareglur síðar í tengslum við myndatökur af slysavettvangi og birtingu á þeim.
 
Liðsmenn Brunavarna Austur-Húnavantssýslu vilja einnig gagnrýna störf sumra fréttamanna sem reyndu að afla upplýsinga vegna slyssins. Þrátt fyrir að Fjarskiptamiðstöð Ríkislögreglustjóra hafi sent fjölmiðlum fréttatilkynningu með öllum þeim upplýsingum sem skiptu máli um slysið og beiðni um að björgunarmenn yrðu látnir í friði við störf sín á vettvangi sáu sumir fréttamenn ekki að sér reyndu að hringja á staðinn.
 
Jafnframt viljum við votta fjölskyldu, vinum, vinnufélögum og öllum þeim sem tengjast hinum látna okkar dýpstu samúð og styrk á þessum erfiðu tímum og einnig fær ökumaður hins flutningabílsins sem á um sárt að binda kveðjur.
 
Virðingarfyllst
Jóhann K. Jóhannsson, slökkviliðsstjóri
Brunavarnir Austur Húnavatnssýslu

29. desember 2010

Til baka