Bylting í brunavörnum í sveitum

 
Litlar traktorsdrifnar brunadælur geta skipt sköpum ef eldur kemur upp á afskekktari stöðum. Slökkviliðsstjórinn á Patreksfirði vill að íbúar á slíkum stöðum verði sín eigin slökkvilið. Búið er að koma einni slíkri dælu fyrir á ferðaþjónustubænum Hænuvík við Patreksfjörð.

Litlu dælurnar láta ekki mikið yfir sér en þegar þær eru komnar á sinn stað aftan á dráttarvélunum skila þær álíka krafti og meðal slökkvidæla á slökkvibíl. Og þær hafa þann kost að þær eru alltaf á staðnum.
 
Davíð Rúnar Gunnarsson, slökkviliðsstjórinn á Patreksfirði, vill að íbúar á afskekktum bæjum séu færir um að bjarga sér sjálfir ef upp kemur eldur. Slökkviliðið geti verið lengi á staðinn. Svo komist líka traktorarnir miklu lengra heldur en slökkvibílar. En Davíð segir slökkvidælu ekki vera nóg, reykskynjarar, eldvarnarteppi og slökkvitæki þurfi að vera á hverjum bæ. Hann segir að búi fólk í 20-30 mínútna fjarlægð frá slökkviliði, þá sé ekki hægt að tala um lífbjörgun.
 
Heimild: www.ruv.is
 

03. janúar 2011

Til baka