- Brunavarnir Austur Húnavatnssýslu
- Norðurlandsvegur 2
- 540 Blönduós
- Sími: 452-4327
- Sendu e-mail
- Vefpóstur slökkviliðsmanna
Vísindaferð SA á Blönduós
Slökkviliðsmenn frá Slökkviliði Akureyrar komu í dag í heimsókn á slökkvistöðina á Blönduósi en þeir eru á ferð um norðvestur og vestur hluta landsins að heimsækja slökkvilið. Kynntu þeir sér starfsemina og búnaðinn sem Brunavarnir A-Hún. hafa yfir að ráða og í hverju útkallsmátturinn er fólginn.Það er mjög gott að fá heimsókn atvinnumanna í faginu því á þessum vettvangi geta menn skipst á hugmyndum og aðferðarfræði í mörgum málum. Strákarnir hugðust svo heimsækja m.a. slökkviliðið í Borgarnesi og Slökkviliðið á Akureyri.



