1-1-2 dagurinn 2011

 
1-1-2 dagurinn 2011
Viðbragðsaðilar um land allt fagna 1-1-2 deginum sem haldin er í dag 11.2.2011. Tilfefnið er að gefa almenningi færi á að kynna sér starfsemi viðbragðsaðila í öryggis- og neyðarþjónustu.
Viðbragðsaðilar á Blönduósi ætla ekki að láta sitt kyrr eftir liggja og ætla vekja athygli á starfsemi sinni í dag. Klukkan 17:00 munu viðbragðsaðilar aka um Blönduósbæ á öllum þeim ökutækjum sem þeir hafa yfir að ráða. Klukkan 17:30 munu þeir svo stilla tækjabúnaði sínum upp við björgunarmiðstöð Björgunarsveitarinnar Blöndu við Efstubraut. Þar ætla viðbragsaðilar að grilla pylsur ofan í gesti og gangandi.

Íbúar eru hvattir til að koma á staðinn og kynna sér starfsemi björgunaraðila á svæðinu.
 
Í gær fór fram "þjóðþing" aðila þeirra aðila sem vinna að öryggis- og neyðarþjónustu á Íslandi. Þar var saman kominn 100 mann hópur, þverskurður af þeim einstaklingum sem vinna að öryggis- og bráðaþjónustu í landinu. Meðal þeirra sem sátu fundinn voru Einar Óli Fossdal, umsjónarmaður sjúkraflutninga HSB og Jóhann K. Jóhannsson, slökkviliðsstjóri BAH. 
 
Á vefsíðu 1-1-2  var farið yfir hvað hafi fjallað hafi verið á á fundinum og segir:
- Gildi og hugsjónir neyðar- og öryggisþjónustu.
- Hvað gengur vel í dag í neyðar- og öryggisþjónust?
- Það sem mætti betur fara í öryggis- og neyðarþjónustu.
- Framtíðarsýn fyrir neyðar- og öryggisþjónustu.
- Aðgerðir til að gera framtíðarsýnina að raunveruleika.
 
Í þessu sambandi er hugað að atriðum eins og:
 
- Skipulagi þjónustunnar
- Samvinnu og samskiptum samstarfsaðila
- Upplýsingar og gögn
- Tækniumhverfi
- Hagkvæmni og mögulega hagræðingu
- Framtíð og hlutverk Björgunarmiðstöðvarinnar og Samhæfingarstöðvarinnar í
  Skógahlíð
- Gæði þjónustunnar
- Aðgang að þjónustunni og upplifun almennings
 
 
 

11. febrúar 2011

Til baka