Viðbragðsaðilar vöktu á sér athygli í tilefni dagsins

 
Viðbragðsaðilar vöktu á sér athygli í tilefni dagsins
Viðbragðsaðilar í bráðaþjónustu vöktu athygli á störfum sínum á Blönduósi í dag í tilefni af 1-1-2 deginum. Það gerðu þeir með hópakstri um bæjarfélagið þar sem þeir keyrðu með blá blikkandi ljós og sírenuvæli. Að því loknu var tækjabúnaður viðbragaðsaðilanna til sýnis fyrir utan björgunarmiðstöð Björgunarsveitarinnar Blöndu.

Fjöldi fólks mætti til að kynna sér störf viðbragðsaðilanna auk þess að sem það gæddi sér á grilluðum pylsum sem björgunarsveitar- og slökkviliðsmenn grilluðu.

11. febrúar 2011

Til baka