- Brunavarnir Austur Húnavatnssýslu
- Norðurlandsvegur 2
- 540 Blönduós
- Sími: 452-4327
- Sendu e-mail
- Vefpóstur slökkviliðsmanna
Niðurstöður úr þjóðfundinum 10. febrúar s.l.
Fjölmennur þjóðfundur um neyðar- og öryggisþjónustu, sem haldinn var í tilefni af 112-deginum, kallar eindregið eftir aukinni samvinnu og samhæfingu aðila. Þetta kom skýrt fram þegar frumniðurstöður fundarins voru kynntar við dagskrá í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð á 112-daginn, 11. febrúar. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra lásu upp samantekt af niðurstöðum fundarins og ávörpuðu gesti.Þátttakendur í þjóðfundinum fá vinnugögn fundarins afhent til frekari úrvinnslu á eigin starfsvettvangi en 112 mun einnig vinna úr niðurstöðunum og kynna þær á næstunni.


