- Brunavarnir Austur Húnavatnssýslu
- Norðurlandsvegur 2
- 540 Blönduós
- Sími: 452-4327
- Sendu e-mail
- Vefpóstur slökkviliðsmanna
Umfjöllun um endurnýjun á klippubúnaði
Öll klippuslys, sem slökkvilið Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu kom að á liðnu ári, kostuðu slökkviliðið um 1,8 milljónir króna og segir slökkviliðsstjórinn að slökkviliðið geti hvorki staðið undir þessum kostnaði né keypt nýjar klippur sem kosti 8 til 10 milljónir króna, en verið sé að leita leiða til að efla þann sérhæfða búnað sem þörf sé á.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag (22. feb. 2011). Þar bendir Jóhann K. Jóhannsson, slökkviliðsstjóri BAH, á að samkvæmt lögum, sem tóku gildi um síðastliðin áramót, séu klippurnar á forræði slökkviliða en þær hafi áður verið á forræði lögreglu. Slökkvilið hafi hins vegar almennt sinnt öllu í sambandi við klippurnar, menntað starfsmenn sína, útvegað klippur og séð um viðhald, auk þess að greiða allan kostnað, án lagaskyldu, þar til um síðustu áramót þegar ný lög tóku gildi.
Þegar beðið hafi verið um umsagnir vegna frumvarpsins til breytinga á lögunum hafi slökkviliðsstjórar og sveitarfélög bent á að með breytingunum þyrfti annaðhvort að fylgja fjármagn eða gjaldtökuheimild fyrir notkun á klippunum. Ekki hafi verið orðið við þessum óskum. „Með þessum ábendingum erum við að benda á leið til að standa undir þeim kostnaði sem slökkvilið þurfa að leggja út í þegar útkall verður,“ segir Jóhann í samtali við Morgunblaðið.
Að sögn Jóhanns kosta klippur um 8-10 milljónir króna með öllum búnaði. Í umdæmi Blönduóss eru um 100 km af þjóðvegi 1. Mikil umferð er um svæðið og var þörf á sérhæfðum björgunarbúnaði í ríflega helmingi útkalla Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu á síðasta ári.
Jóhann segir að klippur slökkviliðsins hafi verið keyptar á sínum tíma fyrir söfnunarfé Rauða krossins. Þær séu orðnar 15 ára gamlar og standist ekki lengur þær kröfur sem gerðar eru til slíks búnaðar.
„Klippibúnaður okkar er ekki í stakk búinn til þess að takast á við nýrri gerðir bifreiða eða stóra bíla, þar sem meðal annars yfirbygging þeirra er mun sterkari en áður,“ segir Jóhann og vísar til þess að í nýlegu slysi hafi hann óskað aðstoðar fleiri slökkviliða með sérhæfðan björgunarbúnað þar sem óvíst var að klippubúnaður Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu myndi duga í það verkefni sem fyrir lá.
Jóhann segir að lokum í samtali við Morgunblaðið í dag að tryggingafélögin greiði almennt fyrir endurhæfingu eftir slys, bæti tjón á bílnum, borgi fyrir dráttarbíla og sjúkraflutninga að einhverju leyti en ekki fyrir að klippa fólk úr bílflaki. Það gangi hreinlega ekki upp.
Heimild: huni.is


