Slökkvilið fái styrk til kaupa á sérhæfðum björgunarbúnaði eða gjaldtökuheimild

 
Slökkvilið fái styrk til kaupa á sérhæfðum björgunarbúnaði eða gjaldtökuheimild
Björn Karlsson, forstjóri Mannvirkjastofnunar, segir í samtali við Morgunblaðið í dag að það sé mikið áhyggjuefni að sum slökkvilið hafi hvorki efni á að endurnýja klippur né reka þær. Haft var eftir Jóhanni K. Jóhannssyni, slökkviliðsstjóra Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu í Morgunblaðinu í gær að klippibúnaður slökkviliðsins væri úreltur og nýjar klippur væru dýrar.

„Þetta er mál sem taka verður upp af mikilli alvöru. Annaðhvort með því að veita slökkviliðum gjaldtökuheimild eða með kostnaðarþátttöku ríkis og sveitarfélaga sem skilar sér til slökkviliðanna,“ segir Björn.
 
Áður en tæknin ruddi sér til rúms og klippur komu til sögunnar fyrir um tveimur áratugum voru lögreglumenn með kúbein og járnkarla í lögreglubílum til að losa fólk úr bílum ef á þurfti að halda. Slökkviliðið tók við verkefninu með klippunum, því þeim fylgdi ýmis aukabúnaður eins og rafstöð og hlífðarbúnaður fyrir utan þjálfun, sem Brunamálaskólinn hefur séð um. Málið var hins vegar ekki á forræði slökkviliðsins fyrr en með lagasetningu um sl. áramót, eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær.
 
Björn minnir á að fyrir lagasetninguna hafi verið gerð kostnaðargreining vegna þessa verkefnis og áætlunin hljóði upp á 8-10 milljónir króna fyrir klippur og allan nauðsynlegan búnað fyrir utan rekstur. Hann segir að þótt sveitarfélögin fái hugsanlega einhverjar greiðslur frá ríkinu vegna kostnaðar slökkviliða við klippurnar óttist hann að peningarnir rati ekki til slökkviliðanna. „Það er mjög miður,“ segir hann.
 
Á landinu eru 44 slökkvilið og álagið mismunandi. Björn bendir á að til dæmis slökkviliðið á Blönduósi og í Hveragerði lendi hlutfallslega í mörgum klippislysum vegna fjölda slysa á þjóðveginum í umdæmi þeirra. Fyrir vikið sé kostnaður þeirra meiri en margra annarra vegna klippislysa og það bil þurfi að brúa, annaðhvort með því að veita slökkviliðum gjaldtökuheimild eða með kostnaðarþátttöku ríkis og sveitarfélaga.
 
Heimild: www.huni.is

23. febrúar 2011

Til baka