- Brunavarnir Austur Húnavatnssýslu
- Norðurlandsvegur 2
- 540 Blönduós
- Sími: 452-4327
- Sendu e-mail
- Vefpóstur slökkviliðsmanna
Klippuæfing með Saga Film
Reglubundin æfing Brunavarna A-Hún. (BAH) var haldin í kvöld þar sem slökkviliðsmenn æfðu klippivinnu, með sjúkraflutningamönnum, á vettvangi umferðarslyss. Tvennt var frábrugðið öðrum svipuðum æfingum og það var að slökkviliðsmenn æfðu með "nýjan" klippubúnað sem Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur lána tímabundið, til BAH
Hitt var að á vettvangi "slyssins" voru fulltrúar frá Saga Film sem mynduðu æfinguna og fengu stjórnendur með því þjálfun við "umgengni" við fjölmiðla í vettvangsvinnu.
Æfingin tók í alla staði mjög vel. Aðstæður voru sem næst því að vera eins raunverulegar og hægt var. "Slösuðum" einstaklingum var bjargað úr bílflaki bifreiðar sem hafði endað í skurði eftir útafakstur. Aðstæðurnar voru erfiðar og þurftu viðbragðsaðilir að leysa æfinguna líkt og væri í raunveruleikanum.
Myndir má sjá hér


