Eldur í ruslagámi við Blönduskóla

 
Kveikt var í ruslagámi við Blönduskóla í gær. Betur fór en á horfðist en slökkviliðið var kallað út og náði að slökkva í gámnum áður en eldurinn náði að breiðast út.

 


Gámurinn var staðsettur við kjallaradyr nýja skólans en málning á vegg skemmdist nokkuð. Það er aldrei of oft áréttað fyrir börnum að vera ekki að fikta með eld.
 
Heimild: www.huni.is
Mynd: DV.is

04. apríl 2011

Til baka