- Brunavarnir Austur Húnavatnssýslu
- Norðurlandsvegur 2
- 540 Blönduós
- Sími: 452-4327
- Sendu e-mail
- Vefpóstur slökkviliðsmanna
Slökkviliðsmenn BAH æfðu í sundlauginni á Blönduósi
Reglubundin æfing slökkviliðsmanna hjá Brunavörnum Austur-Húnavatnssýslu var haldin í kvöld. Að þessu sinni fóru slökkviliðsmenn nýju sundlaug Blönduósbæjar þar sem þeir æfðu og kynntust notkun á reykköfunartækjum undir yfirborði vatns, auk þess sem þeir æfðu björgunasund.
Miklu skiptir að æfingar slökkviliðsins séu fjölbreyttar þar sem engin útköll eru eins og með því að halda við fjölbreytni tryggir það að slökkviliðsmenn hafi sem víðastan skilning á noktun þess búnaðar sem slökkviliðið hefur yfir að ráða.
Að því loknu var æfð vatnsöflun við slökkvistöðina. Tæmt var úr tankbifreiðum slökkviliðsins í laug sem slökkviliðið hefur til umráða. Þá var einnig æft að soga vatn með dælum aftur í tankbifreiðarnar.
Myndir má sjá hér


