Mannvirkjastofnun hélt námskeið fyrir slökkviliðsmenn á Blönduósi

 
Mannvirkjastofnun hélt námskeið fyrir slökkviliðsmenn á Blönduósi
Fulltrúar Mannvirkjastofnunar héldu námskeið á Blönduósi um liðna helgi. Námskeiðið sátu slökkviliðsmenn frá Blönduósi og Sauðárkróki.

Slökkviliðsmennirnir fengu þjálfun í meðhöndlun á þeim björgunarbúnaði sem þörf er á til að bjarga fólki úr fastklemmdum bifreiðum eða byggingum. Tvö ökutæki sem talið hafa lífdaga sína voru klippt og var farið yfir margar útfærslur hvernig að því er hægt að standa. Að auk voru slökkviliðsmenn þjálfaðir í björgun á einstaklingum niður stiga ásamt fleiru.
 
Námskeiðið gekk vel og styrkir stoðir beggja slökkviliða þar sem liðsmenn þess eru að sækja sér frekari menntun og reynslu.
 
Myndir af námskeiðinu má sjá hér

11. apríl 2011

Til baka