Mildi að ekki fór verr

 
Mildi að ekki fór verr
Eldri maður brenndist er hann sofnaði út frá logandi sígarettu á Blönduósi um eitt leytið í dag. Maðurinn hafði komið sér fyrir í sófa þegar svefn sótti á hann með þessum afleiðingum að sögn lögreglunnar en sagt er frá þessu á Mbl.is.

Maðurinn var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar en hlaut ekki alvarleg meiðsli vegna atviksins. Íbúðin var reykræst en engar alvarlegar skemmdir urðu.
 
Myndin er úr myndasafni BAH

01. maí 2011

Til baka