- Brunavarnir Austur Húnavatnssýslu
- Norðurlandsvegur 2
- 540 Blönduós
- Sími: 452-4327
- Sendu e-mail
- Vefpóstur slökkviliðsmanna
Bruna- og rýmingaræfing í stjórnsýslubyggingunni
Starfsfólk skrifstofu Blönduósbæjar og Sýslumannsins á Blönduósi fengu fræðslu og þjálfun um eldvarnir og rýmingu s.l. föstudag. Fyrst voru starfsmenn fræddir með fyrirlestri um eldvarnir á vinnstöðum og á heimilum.
Síðar um daginn var svo verkleg æfing í rýmingu stjórnsýslubygginarinnar. En "eldur" var settur upp í aðalandyri hússins og þurftu starfsmenn því að nota aðrar leiðir til að rýma bygginguna. Með því gátu þeir kynnt sér og notað aðrar leiðir ef sú staða kemur upp að rýma þurfi bygginguna í neyð.
Einnig fengu starfsmenn verklega kennslu á notkun á handslökkvitækjum.
Á myndunum má sjá Arnar bæjarstjóra slökkva eld með handslökkvitæki og Bjarna sýslumann fara niður brunastigann.



Myndir af æfingunni má sjá slokkvibill.is/myndir/myndir/id/48


