Almannavarnaræfing 15.10 2011

 
Almannavarnaræfing 15.10 2011

Almannavarnaræfing var haldin 15.október 2011 með öllum viðbragðsaðilum í Húnaþingi Vestra og Austur Húnavatnssýslu. Á æfingunni var farið yfir viðbrögð við rútuslysi.

Set var upp slys á veginum inn Víðidal stut frá bænum Þórukoti. Slysavettvangur var rúta og þrír fólksbílar sem áttu að hafa rekist saman og voru sjúklingarnir um 44 sem viðbragðsaðilar áttu að bjarga. Voru sjúklingar fluttir í greiningarstöð sem var staðsett í Víðihlíð þar sem þeir voru flokkaðir eftir áverkum til frekari flutnings. Einnig var aðgerðarstjórnstöð staðsett á Blönduósi þar sem allt var samræmt. Æfingin gekk vel og eru menn reynslunni ríkari  á eftir. Sjúklingana léku krakkar úr unglingadeildum björgunarsveitanna Blöndu og Húna og stóðu þau sig mjög vel og gerðu æfinguna mjög raunverulega.
 
 

15. október 2011

Til baka